frettabladid-is

Óstöðvandi með OsteoStrong

Nýr lífsstíll getur verið flókinn og það getur tekið langan tíma að samræma hann því lífi sem fólk lifir. OsteoStrong er kerfi sem hjálpar fólki að bæta líkamlegt atgervi hratt og örugglega í stuttri heimsókn einu sinni í viku. Þannig verður breytingin einföld og getur auðveldað aðrar ákvarðanir að betri heilsu.

Með 20 mínútna vikulegri ástundun tekst meðlimum OsteoStrong að auka styrk sinn og jafnvægi hraðar en annars staðar án þess að finna fyrir harðsperrum eða öðrum fylgifiskum. Meðlimir auka styrk vöðva, beina, sina og liðbanda umtalsvert, auk þess að losa sig við verki. Sérhæfð tæki bjóða meðlimum að nýta vöðva í hámarks aflstöðu.

Sumarið er tíminn til að prófa eitthvað nýtt

„Sumrin eru svo spennandi og sumarið í ár er þar alls engin undantekning. Það eru allir svo spenntir að takast á við spennandi verkefni úti við, hvort sem það er að klífa fjall, hjóla, spila golf, synda í sjónum eða gera fínt í garðinum. Við vitum hins vegar að það getur verið erfitt að komast almennilega af stað ef fólk finnur mikið fyrir átökunum í kroppnum daginn eftir. Þar getur OsteoStrong hjálpað verulega til. Við viljum endilega styrkja fólk í því að njóta íslenska sumarsins sem best. Það langar engan að vera bundinn inni á sumrin og því er heppilegt að heimsókn í OsteoStrong tekur í heildina um 20 mínútur einu sinni í viku og þá fær fólk enn meira út úr útiverunni og hreyfingunni,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. Hún bætir við: „Við leggjum áherslu á gott viðmót og notalegt umhverfi og erum svo stolt þegar við heyrum það út undan okkur að það hafi tekist.“

Þjálfarar leiðbeina fólki og passa upp á að æfingarnar séu rétt gerðar.

Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri, óháð líkamlegri getu.

Meðlimir geta átt von á að:

  • Auka styrk
  • Minnka verki í baki og liðamótum
  • Minnka líkur á álagsmeiðslum
  • Bæta líkamsstöðu
  • Auka jafnvægi
  • Lækka langtíma blóðsykur
  • Auka beinþéttni
  • 73% sterkari á ári

„Enginn annar möguleiki sem við þekkjum býður upp á svona mikla styrkingu á jafn stuttum æfingatíma,“ segir Örn Helgason, eiginmaður Svanlaugar og meðeiganda OsteoStrong. Athuganir á árangri meðlima sýna að þeir eru að meðaltali að styrkja sig um 73% á ári.

Æfingarnar taka skjótan tíma en gefa mikinn árangur
Betra jafnvægi

„Fólk sér fyrst mun á jafnvæginu. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta það um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í fjallgöngu. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveldara með að ganga,“ segir Örn.

5.000 meðlimir

„Um 5.000 manns eru og hafa verið meðlimir hjá OsteoStrong. Í hverri viku sækja um 350 manns stöðina í Hátúni og um 280 stöðina í Ögurhvarfi. Við heyrum afrekssögur á hverjum degi. Okkur fannst best að láta fólkið okkar tala fyrir sig, sögur af auknum lífsgæðum eru frábær ástæða til að mæta í vinnuna á morgnana,“ segir Svanlaug.

Frír prufutími

„Við bjóðum upp á fría prufutíma fyrir alla. Þetta er ný hugmynd og það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn.

Ástundun OsteoStrong skilar miklum árangri með auðveldri ástundun. Stöðvar OsteoStrong eru í Hátúni 12, 105 Reykjavík og í Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi. Frían prufutíma má bóka á www.osteostrong.is og í síma 419 9200.

Með OsteoStrong ástundun bætir fólk styrk sinn og þol. Æfingarnar taka einungis 20 mínútur í hvert skipti.
Óstöðvandi í brekkunum

„Í Covid hafði ég minnkað þá hreyfingu sem ég stundaði og ekki verið í jóga. Ég þurfti því að styrkja mig. Í dag er ég mun betri. Þegar ég byrjaði í jóganu aftur fann ég að ég var jafnvel enn sterkari en ég var áður en ég hætti. Ég var óstöðvandi þegar ég fór á fjöll og fann lítið fyrir brekkunum. Núna geysist ég upp brekkurnar eins og hind! Ég mæli með OsteoStrong til að styrkja líkamann og það besta er að það styrkir líka beinin og mótar líkamann. Svo er yndislegt og faglegt starfsfólk.“

Guðrún J. Kristjánsdóttir

Allar hreyfingar betri

„Ég var alltaf með mikla liðverki. Eftir tvö skipti hjá OsteoStrong þá fann ég hvað þeir minnkuðu mikið. Allar hreyfingar líkamans urðu betri, mér leið vel og hlakkaði alltaf til að mæta í tíma. Ég átti ekki von á þeim árangri sem ég náði, OsteoStrong er alveg magnað.“

Þórdís Guðmundsdóttir

Ganga úti í náttúrunni

„Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég mjög slæm í hnjáliðum og baki. Fljótlega fann ég að verkirnir minnkuðu mikið. Það var mikil og mikilvæg breyting fyrir mig. Ég fór að geta hreyft mig mikið meira og ganga úti í náttúrunni. Heilsan varð öll önnur og miklu betri. OsteoStrong er frábær staður og starfsfólkið mjög gott.“

Valgerður Skúladóttir

Betri í hnjánum

„Ég var með verki í hnjánum og jafnvægið var mjög lélegt. Ég stundaði OsteoStrong í þrjá mánuði. Á þeim tíma minnkuðu verkirnir hægt og rólega og jafnvægið varð miklu betra. Ég fann fyrir meiri styrk og auknu úthaldi. OsteoStrong er frábær leið til að bæta heilsuna.“

Helga Stefanía Magnúsdóttir

Algert frelsi

„Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég með verk sem leiddi frá baki niður í hné. Ég var viss um að það væri einhver taugaklemma. Ég hafði farið til heimilislæknis og sjúkraþjálfara en það breytti engu. Mér til mikillar undrunar hvarf verkurinn eftir nokkur skipti. Ég var sterkari og með meira jafnvægi. Frábært að losna loksins við þennan verk. OsteoStrong fyrir mér er algert frelsi og svarið sem ég þurfti.“

Inga Hersteinsdóttir

Komst loksins á hestbak

„Það háði mér að vera með mikinn svima og lítið jafnvægi. Eftir þrjá tíma hjá OsteoStrong var jafnvægið orðið margfalt betra og sviminn nánast horfinn. Ég varð stöðugri og öruggari með mig. Loksins gat ég farið út að hjóla og á hestbak sem ég gat ekki áður. OsteoStrong er ótrúleg lausn fyrir mig.“

Íris Hall

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum