OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp.
73% sterkari á einu ári
Hvernig virkar þetta?
Við byrjum hvern tíma á að hreyfa líkamann á þar til gerðum hristingspöllum í 1-2 mínútur. Þannig verður fólk tilbúnara fyrir átökin. Það eru ekki margir sem vita það en vöðvarnir okkar eru mjög missterkir eftir því hvernig við beitum þeim. Þar sem útlimirnir okkar eru næstum því útréttir eða beygðir í u.þ.b. 120 gráður eru þeir allt að 5-7 sinnum sterkari en þegar að útlimirnir eru dregnir alveg að líkamanum.
Lyftingatæki OsteoStrong eru einstök í heiminum og gerir fólki kleyft að beita sér þar sem vöðvarnir eru sterkastir. Þannig náum við að ýta frá okkur fleiri kílóum og setja þannig mun meira álag á líkaman en við getum flestar aðrar aðstæður og á jafn öruggan hátt og við þekkjum. Við stillum okkur vel þannig að álagið verði sem best, gerum eina prufu og tökum svo rólega á, höldum í nokkrar sekúndur og komum svo rólega til baka í upphafstöðu og förum svo í næstu þrjú tæki. Þegar við erum búin með æfingarnar fjórar förum við aftur á hristingspallana og æfum þar jafnvægið.
Hvað er
OsteoStrong®?
Ávinningur
- Fyrir styrk
- Fyrir jafnvægi
- Fyrir líkamsstöðu
- Fyrir beinþéttni
- Fyrir verkjalosun
Fyrir styrk
Gerð var langtíma athugun á 500 meðlimum OsteoStrong þar sem meðalaldur var 52 ár. Þar kom í ljós að meðlimum sem stunduðu OsteoStrong með 10 mínútna æfingum einu sinni í viku tókst að auka styrk sinn að meðaltali um 73% á fyrsta árinu. Á ári tvö voru þau búin að auka styrkinn sinn um 136%, eftir þriðja árið 201% og fjórða árið 290%!
Þetta þýðir að fólk á öllum aldri nær að bæta styrk sinn. Þeir sem eru sterkastir sjá minni mun og þeir sem eru minnst sterkir sjá hraðar mun á sér.
Fyrir jafnvægi
Það hefur komið okkur ánægjulega á óvart að fylgjast með meðlimum sem vilja bæta jafnvægið. Sumir finna mun á sér strax eftir fyrsta tíma og það er yfirleitt það fyrsta sem breytist með ástundun OsteoStrong. Það mikla álag sem hægt er að setja á líkamann í tækjum OsteoStrong örvar miðtaugakerfið og við náum að bæta jafnvægið hraðar en við aðrar aðstæður.
Við höfum séð fólk losa sig við göngugrindur, aðra njóta þess betur að hjóla úti og enn aðra höfum við séð leyfa sér að fara í fjallgöngur sem það hefði annars veigrað sér við.
Fyrir líkamsstöðu
Þeir sem þurfa að eyða miklum tíma við skrifborð, fyrir framan tölvu eða bara í spjaldtölvu finna yfirleitt fyrir að líkamsstaðan þeirra versnar. Mikla álagið á bakið sem meðlimir setja á sig í æfingum OsteoStrong hjálpar til við að byggja upp þá vöðva sem halda okkur uppi og hjálpa fólki við að halda góðri líkamsstöðu alla vikuna. Þetta á jafnt við um unga sem aldna.
Fyrir bein-þynningu
Alveg síðan seint á 19. öld hefur verið þekkt að álag eða þyngd á bein eykur beinþéttni. Það er kallað lögmál Wolfs. Um þetta eru til um 20.000 rannsóknir og er vel þekkt í vestrænum lækningum. Þess vegna er fólk hvatt til að lyfta þungu eða hoppa til þess að örva beinvöxt. Í hefðbundnum líkamsræktarstöðvum er fólk almennt að lyfta um 1,26 til 1,54 margfeldi af eigin líkamsþyngd. Í rannsókn sem birt var árið 2012 kom í ljós hversu mikla þyngd þyrfti til að örva beinþéttni. Kevin Deere (Journal of Bone and Mineral Research) komst að þeirri niðurstöðu að til þess að ná fram almennilegri þéttingu í mjöðm þyrfti krafturinn að vera að minnsta kosti 4,2 sinnum líkamsþyngd viðkomandi. OsteoStrong gerir það mögulegt á jafn öruggan hátt og raun ber vitni.
Hjá OsteoStrong eru notendur oft að lyfta meira en fjórum til átta sinnum sinni eigin líkamsþyngd sem útskýrir hvers vegna þétting beina verður eins mikil og raun ber vitni um. Þessi átök koma einnig af stað þéttingu í vöðvum, sinum og liðböndum sem svo geta bætt líkamsstöðu og minnkað verki í stoðkerfinu.
Fyrir verkjalosun
Hverjir stunda
OsteoStrong®?
Einstaklingar frá 12-97 ára hafa nýtt sér þjónustu OsteoStrong á Íslandi. Flestir eru 35 ára eða eldri. Mjög margir koma af því að þeir vilja bæta framistöðu sína í íþróttum en enn fleiri koma til þess að styrkja sig og losa sig við verki í liðum og baki. Einnig eru margir sem koma því þeir vilja bæta hjá sér jafnvægið.
Við bjóðum upp á fría prufutíma til þess að fólk geti mátað sig við kerfið. Í undantekningar tilvikum er það ekki augljóst að það takist. Einstaklingar með mjög skerta hreyfigetu eru oft hikandi en reynsla okkar er að ef að einstaklingur getur staðið upp þá hentar OsteoStrong vel.
Þeir sem eru með muscular dystrophy sjúkdóminn ættu ekki að stunda OsteoStrong ásamt þeim sem eru á þriðja hluta meðgöngu og þeim sem eru með mjög háan blóðþrýsting og ekki á lyfjum. Einnig þeir sem eru með opið/nýtt kviðslit.
OsteoStrong gæti líka verið varhugaverður kostur fyrir þá sem eru með mjög mörg (8-10) samfallsbrot í hrygg.
Eigendur OsteoStrong® á Íslandi
Við vorum stödd á námskeiði í London því að við vorum á tímamótum í lífi okkar. Við vorum að velta því fyrir okkur, hvað okkur langaði til að gera næst. Hvað við vildum meira af og hvað við vildum minn af. Námskeiðið var svaka stuð, 15 klukkutímar á dag í fimm daga og við skemmtum okkur konunglega. Við komumst að þeirri niðurstöðu að við vildum helst vera saman í rekstri. Ekki bara hittast á morgnanna og á kvöldin heldur vera meira nálægt hvort öðru.
Á síðasta degi var talað um heilsu. Það hvernig maður gæti haft alls konar drauma og hugmyndir um lífið en ef maður hefði ekki heilsu þá væri ólíklegt að maður kæmi jafn miklu í verk og mann langaði. Það var talað um alls kyns hreyfingu, mataræði, hugleiðslu og svoleiðis, en svo var líka talað um OsteoStrong! Við vorum nýflutt aftur til Íslands eftir að hafa búið í spænskri sveit þannig að okkur fannst fólkið á Íslandi frekar þreytt og stressað.
Við hugsuðum með okkur að ef að við gætum fært heim möguleika sem gerði jafn mikið á jafn stuttum tíma þá værum við að gera þjóðþrifaverk og fólk gæti þá gefið sér meiri tíma í hreyfingu sem þeim þætti gaman að stunda eða bara hreinlega með fólkinu sínu. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Þegar OsteoStrong var stofnað hérna vorum við fimmta landið í heiminum til þess að opna svona stöð. Þúsundir fólks hefur nú þegar fengið frábæran árangur með OsteoStrong og við heyrum daglega sögur af því hvernig OsteoStrong hefur bætt lífsgæði fólks. Það gefur okkar lífi gildi og kraft til þess að halda áfram.
Verðskrá
Áskrift
Með því að greiða mánaðargjald í OsteoStrong getur þú mætt einu sinni í viku og náð hámarksárangri.
32.900 kr / mán
Lágmark 3 mán
(32% afsl. 4 skipti í mánuði – 8.225 kr skiptið)
Eingreiðsla
189.900 kr.
26 skipti 42 % afsl. (skiptið á 7.304)
94.900 kr.
12 skipti 37% afsl. (skiptið á 7.908)
49.900 kr.
4 skipti (skiptið á 12.475)
349.900 kr.
52 skipti 46% afsl. (skiptið á 6.729)
Dagleg notkun á Púlsuðum rafsegulbylgjum 24.900 kr. á mánuði til viðbótar.
Öryrkjar, 67 ára og eldri fá 5% afslátt af verðskrá
Algengar spurningar
Má ég koma og prófa?
Endilega! Við bjóðum upp á fría prufutíma til þess að allir fengið góða kynningu, spurt allra spurninga sem þeim dettur í hug og mátað sig við kerfið. Pruftímarnir eru á fimmtudögum í Hátúni 12 og föstudögum í Ögurhvarfi 2.
Prufutíminn tekur 60-90 mínútur. Í hann mæta yfirleitt 6-12 manns í einu. Hann hefst á 10-15 mínútna kynningu og svo eru allir leiddir í gegnum OsteoStrong tækin. Ekki er þörf á að koma í sérstökum æfingafötum, bara eins og þér hentar.
Má ég mæta oftar en einu sinni í viku?
Afhverju gerum við hverja æfingu bara einu sinni?
Afhverju eru þetta bara fjögur styrktartæki?
Hentar þetta með annari hreyfingu?
Er hægt að fá OsteoStrong niðurgreitt?
Flest stéttarfélög og sumir vinnustaðir bjóða upp á líkamsræktarstyrki. Í langflestum tilvikum er hægt að nýta þessa sjóði til þess að greiða niður ástundun í OsteoStrong. Sumir sjóðir eru tilbúinr að greiða meira. Eina undantekningin sem við þekkjum er að Efling er ekki til í að styrkja ástundun.
Í hvaða fötum á ég að vera?
Hvenær byrja ég að finna mun á mér?
Fólk úr öllum áttum og öllum aldri stundar OsteoStrong þannig að það er erfitt að alhæfa fyrir fjöldann. Sem þumalputtareglu segjum við að til þess að losa sig við verki í liðum þurfi ástundun upp á 3-6 mánuði. Fólk finnur oft mun á jafnvæginu strax eftir fyrsta prufutímann og á 2-3 mánuðum ættu æfingarnar að vera farnar að bæta jafnvægið vel.
Ef fólk kemur í OsteoStrong til þess að byggja upp bein þá getur það verið 1-3 ár, allt eftir því hversu slæm beinþynningin er, hversu vel manneskjan frásogar næringarefni sem til þarf til að byggja upp bein og hversu hentug efnaskiptin eru.
Get ég stundað OsteoStrong ef ég er með gervilið?
Já, það er ekkert mál. Passaðu bara að það séu liðnir 6 mánuðir frá aðgerð. Sumir koma til okkar til að styrkja sig fyrir aðgerð og aðrir til að koma sér aftur á fætur.
Biohack
Enska orðið „Biohack“ er notað yfir leiðir til þess að virkja líkamann til þess að bæta sig hraðar en almennt þekkist. Það svipar til þess að „stytta sér leið“. Framkvæmdin er önnur en ávinningurinn sá sami. OsteoStrong er ein þessara lausna en hún styrkir grunnstoð líkamans, beinagrindina og vöðva. Það þarf ekki mikinn tíma né sérlega mikinn sjálfsaga til þess að sjá frábærar niðurstöður. Fólk mætir eins og það er klætt og starfsfólk OsteoStrong leiðir meðlimi í gegnum ferlið.