frettabladid-is

Búinn að leggja göngugrindinni og stafnum eftir þrjá mánuði í OsteoStrong

Haraldur Elfar Ingason fékk heilablóðfall fyrir tveimur árum. Hann var orðinn mjög slappur og með lélegt jafnvægi þegar hann kynntist OsteoStrong í vor, en eftir aðeins þrjá mánuði af æfingum sem hann ástundar í 20 mínútur aðeins einn dag í viku þarf hann ekki lengur göngugrind né staf og finnst hann hafa fæðst í annað sinn.

Ég á svolitla sögu,“ segir Haraldur. „Ég hef farið tuttugu ferðir á milli Reykjavíkur og Selfoss með blikkandi bláum ljósum sjúkrabílsins. Síðasta ferðin var eftir alvarlegt heilablóðfall. Þá sagði konan mín: „Nú gengur þetta ekki lengur. Nú flytjum við í bæinn.“ Ég fór í skipulagt ferli hjá Borgarspítalanum og í endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara á Selfossi og náði nógu langt í henni til að pakka saman húsinu og flytja í bæinn. Það var eins gott því út af gáttatifinu mínu fór ég þrisvar sinnum á mánaðarfresti með sjúkrabíl á bráðamóttökuna,“ segir Haraldur en þó er augljóst að honum þykir það samt ekki mikið tiltökumál.

Hjónin Haraldur Elfar Ingason og Erla Hafdís Theódórsdóttir. Haraldur fær ekki nógsamlega þakkað konu sinni fyrir hvatninguna og driftina að draga hann með sér í OsteoStrong. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

Hafði enga trú á sjálfum sér

Í maí á þessu ári var Haraldur orðinn ansi slappur.

„Ég var eins og andlaust gamalmenni á tíræðisaldri. Ég gekk ekki neitt, nema með höndina á öxlinni á konunni minni; hún var bara eins og göngustafurinn minn. Ég hafði enga trú á sjálfum mér og fannst leiðin liggja niður á við. Ég gat ekkert gert. Menn í húsinu okkar eru tuttugu árum eldri en ég, en ég átti ekkert í þá. Ég var eiginlega bara hismi; bara ekki neitt. Ég veit ekki hvar ég væri án Erlu Hafdísar Theódórsdóttur, konunnar minnar,“ segir Haraldur dreyminn á svip.

Hafdís kom Haraldi af stað

„Einhvern tímann sagði Erla Hafdís við mig: „Halli, mig langar svo til að prófa þetta nýja OsteoStrong í Ögurhvarfi. Ertu til í að koma með mér?“ Ég hló og endurtók orð hennar glettinn: „Mig langar til að prófa?“ því auðvitað vissi ég að hún væri að koma mér af stað og hún er svona rosalega góð í því,“ segir Haraldur og það er greinilegt að hjónabandið einkennist af trausti og hlýju.

„Mér finnst svo gott að hægt sé að koma í frían prufutíma hjá OsteoStrong. Þá þorir maður að koma og kynna sér þetta. Þegar við mættum í fyrsta prufutímann bað ég Hafdísi mína að leggja bílnum alveg upp að hurðinni, en hún lét það nú ekki eftir mér enda alltaf að reyna að fá mig til að labba eftir leiðbeiningum læknanna. Þetta var þó ekki meira en auka fimmtán metrar, sem var nær ógjörningur fyrir mig. Ég stóð upp úr bílnum með því að ríghalda mér og labba meðfram honum, hélt í toppgrindina, svo spegilinn, þá húddið, svo Hafdísi og skakklappaðist yfir planið. Þegar ég kom inn náði ég rétt svo inn fyrir hurðina og hékk á móttökuborðinu. Hvert einasta skref var stórt átak,“ greinir Haraldur frá.

Strax eftir fyrsta prufutímann í OsteoStrong fann Haraldur mun á styrk sínum og jafnvægi. Hann lofar starfsfólk Osteo­Strong, tækin, æfingarnar og árangurinn í hástert. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

Fattaði ekki hvað hafði gerst

„Það var yndislegur maður sem tók á móti okkur í prufutímanum. Hann byrjaði á að kynna OsteoStrong fyrir okkur og fór svo með mig á hristiplatta og í tækin fjögur, og svo aftur á hristiplattann til að gera jafnvægisæfingar í tvær mínútur og svo í slökun. Eftir tímann ákváðum við að skrá okkur í þrjá mánuði hvort. Svo fórum við. Aldrei þessu vant náði ég í skóhornið á undan Hafdísi og bara rölti sjálfur út í bíl. Mér skilst að hann hafi verið skemmtilegastur á mér svipurinn þegar ég stóð hjá bílnum og sagði sigri hrósandi: „Hafdís! Sástu þetta?“ Ég fattaði ekki alveg hvað hafði gerst fyrr en ég var kominn að bílnum og varð svo hissa að ég átti ekki orð. Nú eftir þrjá mánuði af æfingum er ég bestur ef ég sting bara höndunum í vasann og spígspora þannig. Munurinn á mér er mjög dramatískur,“ segir Haraldur.

Ótrúlegur árangur á stuttum tíma

Hafdís, kona Haraldar, segir hafa verið ótrúlegt að fylgst með honum eftir að hann byrjaði í OsteoStrong.

„Mér finnst magnað hvernig eitthvað sem tekur svona rosalega stuttan tíma geti verið svona mikilvægt í lífi manns,“ segir Hafdís og heldur áfram:

„Haraldur kláraði eins árs sjúkraþjálfun en var svo bara útskrifaður. Sjúkraþjálfunin kom honum aftur á fætur eftir heilablóðfallið en eftir tæpt ár var talið að ekki væri hægt að bæta líðan hans meira. Þar tók OsteoStrong við og skilaði okkur meiru en við hefðum getað ímyndað okkur. Þetta er auðvitað ástundun og það eru auðvitað ekki allir sem upplifa æfingarnar jafn ýkt og hann, en mikið er það verðmætt; ég er búin að fá manninn minn til baka,“ bætir Hafdís brosandi við.

Áður en Haraldur hóf reglulega æfingar hjá OsteoStrong segist hann hafa verið eins og andlaust gamalmenni á tíræðisaldri, ófær um að gera nokkuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

Endurlífgun á hnefanum

Hafdís hefur áfram orðið.

„Ég hef misst Harald áður. Við vorum að keyra Þrengslin í hræðilegu veðri þegar hann vildi allt í einu opna gluggann því hann þráði ferskt loft. Þá vissi ég að eitthvað var að. Ég keyrði út í næsta kant, þá var hann orðinn hvítur í framan og eftir það byrjaði hann að blána. Ég hringdi á sjúkrabíl og þar var mér sagt að koma Haraldi út úr bílnum, leggja hann á jörðina og byrja að hnoða hann. Þá sagði ég: „Ertu vitlaus, manneskja? Það er hræðilegt veður hérna uppi á heiði og þá deyr hann bara af lungnabólgu í staðinn.“ Ég setti svo símann til hliðar og bara lamdi hann til lífs með hnefanum. Já, það er ýmslegt sem gengur á í 40 ára hjónabandi,“ segir Hafdís kankvís.

Léttari í lund

Eftir aðeins þriggja mánaða æfingar í OsteoStrong segist Haraldur vera kominn til baka.

„Það er eins og ég hafi endurlífgast. Ég var ekki í dauðadái en ég var orðinn ónýtt gamalmenni og hættur að vera ég. Í dag er lundin svo mikið léttari og það er aftur kominn leikur í lífið. Ef ég ætti ekki þessa konu sem mína, þá veit ég ekki hvernig þetta hefði allt saman farið. Eftir þessi áföll mín hefur hún þurft að taka yfir ýmislegt sem ég hafði áður séð um. Við höfum orðið vitni að því að fasteignasalar, bankastarfsmenn, iðnaðarmenn og annað fólk tali ekki af sömu virðingu til konu og til karlmanns. Þá verð ég bálvondur. Hvað gæti verið betra en hún?“ segir Haraldur með mikilli áherslu.

„Við röltum oft yfir í félagsheimilið hérna og fáum okkur að borða. Það er svo fyndið að sjá viðbrögð félaganna þar eftir að ég byrjaði að stunda OsteoStrong. Þeim fannst munurinn á mér svo snögglegur að sumir héldu að göngugrindin og stafurinn hefðu bara verið látalæti og ég hefði bara verið að setja upp leikrit,“ segir Haraldur, hlær dátt og bætir við: „Ég er bara snöggur að svara og sendi alla sem ég hitti í OsteoStrong.“

OsteoStrong býður upp á fría prufutíma á miðvikudögum í Ögurhvarfi 2 og á fimmtudögum í Hátúni 12. Pantið prufutíma á osteostrong.is eða í síma 419 9200.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum