frettabladid-is

Hvað myndir þú gera öðruvísi ef þú yrðir 73 prósentum sterkari í ár?

OsteoStrong er byltingarkennt kerfi sem hjálpar fólki að styrkja vöðva og bein, minnka verki í liðum og stoðkerfi og auka jafnvægi með góðum árangri. Ástundun tekur 10-20 mínútur á viku.

Allir sem stunda OsteoStrong auka styrk sinn og bæta jafnvægið þrátt fyrir að æfingarnar taki svona stuttan tíma. Það var gaman að fá loksins nýtt ár og gott að okkar fólk hafði engu gleymt. Það var enn skemmtilegra þegar fjöldatakmarkanir fóru upp í tuttugu því þá starfar OsteoStrong af fullri getu og það er náttúrulega miklu skemmtilegra,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong.

Svanlaug segir marga hafa dottið út úr reglubundinni hreyfingu og þá geti verið erfitt að koma sér af stað aftur. Styrktaræfingar hjá OsteoStrong taka bara 10 til 20 mínútur, einu sinni í viku. Fólk mætir í venjulegum fötum, tekur á, en svitnar ekki og getur fylgst mjög vel með styrktaraukningu. Þess vegna er ástundun hjá OsteoStrong frábær leið til að koma sér af stað, ekki síst á meðan sóttvarnalög eru enn ríkur þáttur af daglega lífinu.

„Við erum alltaf að heyra frábærar árangurssögur frá meðlimum okkar. Núna höfum við verið starfandi í tvö ár og erum sífellt að taka á móti nýju fólki. Margir eru búnir að vera lengi á leiðinni og hafa jafnvel lesið allt sem frá okkur kemur. Ef einhver sem les þessa grein er þar, þá bara hvet ég viðkomandi til að panta sér prufutíma. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong.

Þeir sem stunda æfingar hjá Osteo­Strong njóta handleiðslu frábærra þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann. FRÉTTABLAÐIÐ/­SIGTRYGGUR ARI
4.200 Íslendingar hafa prófað OsteoStrong

Með ástundun OsteoStrong einu sinni í viku þéttast beinin, vöðvar, sinar og liðbönd. Tæki OsteoStrong gera meðlimum kleift að ýta frá sér fleiri kílóum en er mögulegt annars staðar. Oft er það álag sem samsvarar margfaldri líkamsþyngd þeirra.

„Þess vegna gerast hlutirnir oft hraðar hérna heldur en við aðra hreyfingu. Fólk losnar gjarnan við verki, eykur jafnvægi og orku. Þá er svo miklu skemmtilegra að vera til,“ segir Svanlaug.

Betra jafnvægi

„Fólk sér fyrst mun á jafnvæginu. Eftir aðeins fimm skipti er það að meðaltali búið að bæta jafnvægið um 77 prósent. Fyrir suma þýðir það að þeir verða betri í golfi, eða stöðugri í jógatímum. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveldara með að ganga,“ upplýsir Svanlaug.

Rauð og nær-innrauð ljós bæta kollagenframleiðslu húðarinnar.
Alls konar fólk

Fólk sem stundar OsteoStrong er á öllum aldri og mjög mismunandi á sig komið. Margir nota það sem viðbót við aðra þjálfun, en fyrir suma er OsteoStrong það eina sem þeir geta stundað.

„Það er ekki meiningin að við séum eina hreyfingin sem fólk stundar. Við hvetjum fólk endilega til að gera allt sem því þykir skemmtilegt. Fyrir suma erum við það fyrsta sem þeir geta gert eftir að hafa dottið út úr hreyfingu í langan tíma. Fyrir aðra erum við einmitt hjálpin sem þurfti til að ná markmiðum í þríþrautinni,“ bætir Örn við.

Hámarksárangur á lágmarkstíma hjá OsteoStrong

Meðlimir geta átt von á að:

  • Minnka verki í baki og liðamótum
  • Lækka langtíma blóðsykur
  • Auka beinþéttni
  • Bæta líkamsstöðu
  • Auka jafnvægi
  • Auka styrk
  • Minnka líkur á álagsmeiðslum
  • Álag þéttir vöðva

OsteoStrong býður upp á ókeypis prufutíma á fimmtudögum og föstudögum í Borgartúni 24. Áhugasamir geta skráð sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200.

Ástundun OsteoStrong tekur stutta stund og fólk finnur fljótt mikinn mun.
Fljótlega verkjalaus

„OsteoStrong er í mínum huga styrkur, kraftur og hreysti. Ég varð fljótlega verkjalaus eftir að hefja ástundun hérna. Ég fann það strax eftir fyrsta tímann og hef fundið það aukast síðan. Þegar ég geng á fjöll finn ég fyrir meiri krafti, orku og meiri gleði. Alltaf þegar ég kem í OsteoStrong mætir mér hlýja, virðing og fagmennska. Ég er þakklát fyrir að hafa verið leidd hér inn og mun vera hér áfram.”

Lísbet Grímsdóttir, lífeindafræðingur og fjallgöngumaður.

Ég fann strax mun

„Síðastliðin fimm ár hef ég lagt mikið upp úr því að finna leiðir til þess að bæta jafnvægið. Ég tók meðal annars þátt í rannsókn á jafnvægi á Landakoti sem stóð í þrjá mánuði. Þá gerði maður sjálfur æfingar í 15 mínútur á dag og fór vikulega til sjúkraþjálfara, og það reyndist mér vel. Ég er þess vegna orðin mjög meðvituð um virkni og áhrif jafnvægisæfinga. Ég varð því rosalega hissa eftir að finna strax mun á jafnvæginu eftir aðeins einn prufutíma hjá OsteoStrong! Einungis fjögur tæki í stutta stund, með hlutfallslega litlu átaki þrátt fyrir hámarks aflsbeitingu. Á örfáum vikum fann ég einnig hvernig æfingarnar höfðu jákvæð áhrif á allt stoðkerfið. Það eru lífsgæði að vera með gott jafnvægi,“ segir Magný Jóhannesdóttir.

Miklu orkumeiri

„Mig langar svo oft að gera alls kyns hluti sem ég hef hreinlega ekki orku til. Ég sló því til og mætti í prufutíma hjá OsteoStrong eftir að hafa fylgst með þeim í nokkrun tíma. Eftir annað skiptið fór ég að finna breytingu. Ég varð töluvert orkumeiri en vissi ekki hvort þetta væru nokkrir góðir dagar hjá mér eða að OsteoStrong væri að virka svona vel. Nú er ég búin með fimm tíma og orkan sem ég fann eftir tímana tvo hefur haldið áfram. Ég hef ekki átt svona marga góða daga í mjög langan tíma.

Svefninn breyttist líka. Ég er fljótari að sofna, vakna úthvíldari og á því betra með að vakna. Ég ætla því hiklaust að halda áfram hjá OsteoStrong og mæli með því að fólk prófi,“ segir Ingibjörg Eiríksdóttir.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum