frettabladid-is

Aukinn styrkur fyrir alla

Um 50% kvenna og 30% karla yfir fimmtugt brjóta bein á lífsleiðinni. Fyrirtækið OsteoStrong á ­Íslandi hefur það að markmiði að styrkja bein og vöðva á aðeins 60 sekúndum, einu sinni í viku.

Fyrirtækið OsteoStrong, sem var opnað í Borgartúni 24 í Reykjavík í upphafi þessa árs, hefur það að markmiði að styrkja bein og vöðva meðlima svo um munar með aðeins 60 sekúndna átaki, einu sinni í viku. Svanlaug Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og eigandi ásamt eiginmanni sínum, Erni Helgasyni.

„Viðtökurnar hafa verið frábærar og við erum strax komin með góðan hóp af alls kyns fólki. Hérna stunda til dæmis saman hreyfingu þríþrautarkappi, jógakennari, kraftlyftingamaður og hjólreiðakappi á sama tíma og einstaklingar sem eru langt leiddir með beinþynningu, vefjagigt og fólk sem er að ná sér eftir krabbameinsmeðferð. Sem sagt alls konar fólk að bæta sig og styrkja,“ segir Svanlaug.

Álag á bein styrkir bein

„Á ensku er aðferðin sem við beitum kölluð „osteogenic loading“ sem þýðir beinþéttingarhleðsla, lauslega þýtt. Það er vel þekkt, að það að setja álag á bein leiðir til þess að líkaminn hefst handa við að þétta beinin. Þetta var fyrst uppgötvað á nítjándu öld og það eru til um 20.000 rannsóknir sem að styðja það. Það var þó ekki fyrr en 2012 sem kom í ljós hversu mikið það álag þarf að vera. Það er miklu meira en fólk getur yfirleitt lyft. Tækin líta út eins og venjuleg líkamsræktartæki en virka allt öðruvísi. Í tækjunum hjá okkur notar fólk vöðvana í sterkustu stöðu þannig að það getur á öruggan hátt sett mikið álag á beinin. Líkaminn skilur það sem þörf til að styrkja bein og viðkomandi frumur hefjast handa við uppbyggingu af krafti,“ segir Svanlaug.

Einstök ný tækni

OsteoStrong byggir á einstakri nýrri tækni sem byrjað var að nýta utan Bandaríkjanna árið 2018.

„Við erum fjórða landið fyrir utan Bandaríkin til þess að opna svona stöð. Það hefur komið okkur á óvart hvað meðlimir okkar eru vel lesnir. Ein þeirra hafði þegar stundað OsteoStrong og farið reglulega til Svíþjóðar til þess. Önnur hafði lesið um þetta á netinu en datt í ekki í hug að þetta mundi koma hingað nógu fljótt til þess að það myndi nýtast henni,“ segir Svanlaug.

Sterkari bein

Þegar fólk stundar OsteoStrong setur það mikið álag á vöðva og bein. Tækin eru fjögur og hver æfing tekur um 15 sekúndur.

„Fólk sem þjáist af miklum verkjum á oft erfitt með að lyfta lóðum. Þar sem æfingarnar eru svo stuttar og aðeins einu sinni í viku geta flestir stundað þær. Fólk er að meðaltali að auka styrk sinn um 73 prósent á ári. Svo mikil styrktaraukning á stuttum tíma gerir það oft að verkum að fólk losnar við þráláta verki, oft eftir að hafa jafnvel leitað lausna í mörg ár. Það eru líka margir sem vinna svo mikið að þeir eiga erfitt með að sinna líkamanum sem skyldi,“ bætir hún við.

Það er einstakt að geta boðið upp á þjónustu sem svo margir græða á að stunda. MYND/ANTON BRINK
Einstakur árangur

Þegar talað er um beinheilsu hugsa flestir um gamalt fólk, segir Svanlaug. Hún bendir á að styrkur beina skipti hins vegar máli fyrir allt fólk. „Styrkur vöðva takmarkast af styrk beina og því er OsteoStrong ekki síður mikilvægt fyrir íþróttafólk sem vill ná yfirburða árangri. Það kemur líka á óvart hversu margir eru með gisin bein út af lyfjum eða lélegu mataræði. Eftir tíðahvörf geta konur misst allt að 20 prósent af beinmassa á fyrstu 5 til 7 árunum en eftir það um 2 prósent.“

Almenn beinþéttnilyf þétta bein um 2 prósent á ári að meðaltali, en rannsóknir sýna að OsteoStrong getur bætt beinþéttni að meðaltali um 14,7 prósent á ári.

„Jafnvægi eykst að meðaltali um 77 prósent eftir fimm skipti. Styrkur eykst líka að meðaltali um 73 prósent eftir eitt ár og 290 prósent eftir fjögur ár. Blóðsykur, eða HbA1c, getur líka lækkað um 8,8 prósent á hálfu ári.“

Svanlaug er þakklát fyrir að fá að standa fyrir þessu framtaki.

„Okkur fannst svo einstakt að geta boðið upp á þjónustu sem svo margir gætu grætt á að stunda. Það er einstakt að sjá meðlimi koma inn úr dyrunum og brosa út að eyrum af eftirvæntingu.“

Nánari upplýsingar á www.osteo­strong.is eða í síma 419-9200.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum