frettabladid-is

Úr 10 í 42 km á nokkrum vikum með OsteoStrong

Kraftmiklir vöðvar, sterk bein, þéttar sinar og liðbönd á tíu mínútum í viku. Jórunn Jónsdóttir fann mun á mjaðmaverkjum eftir 2-3 skipti í OsteoStrong og náði á stuttum tíma að hlaupa verkjalaus. Hún hefur meðal annars tekið þátt í maraþoni án þess að finna fyrir því.

Ég fór á kynningu hjá OsteoStrong. Mér fannst margt mjög áhugavert sem þar kom fram og það kom mér á óvart að OsteoStrong er ekki bara fyrir gamalt fólk með beinþynningu, heldur er ávinningurinn fyrir íþróttafólk mikill. Ég bókaði því prufutíma og keypti mér strax áskrift. Í besta falli myndi þetta hjálpa mér með mín vandamál og í versta falli myndi þetta hafa góð áhrif á beinheilsu mína sem ég held að allt of fáir séu að pæla í,“ segir Jórunn Jónsdóttir, fjármálastjóri og íþróttakona.

Athuganir á árangri meðlima sýna að þeir styrkja sig að meðaltali um 73% á ári.

„Mín helstu vandamál voru að ég hef alltaf verið að læsast í spjaldliðnum sem verður til þess að mig verkjar í mjöðmina þegar ég hleyp. Einnig hafði ég hryggbrotnað í ágúst 2017 og vantaði að styrkja það svæði. Þegar ég byrjaði í OsteoStrong var ég með mikla verki í mjöðminni vegna æfinga fyrir Parísarmaraþon, sem ég ætlaði að hlaupa. Ég var í rauninni aðeins búin að gefast upp, því það er þreytandi að vera alltaf með verki eftir æfingar. Eftir tvö til þrjú skipti í OsteoStrong fann ég strax mun og var farin að hlaupa verkjalaus. Sjúkraþjálfarinn minn, sem þurfti vanalega að losa spjaldliðinn hjá mér á tveggja vikna fresti, hafði orð á því að ástandið á mér væri óvenju gott, allt í einu var ég farin að læsast mun sjaldnar. Ég hljóp síðan maraþonið mitt verkjalaus og hef hlaupið önnur eftir það. Ég get því heils hugar mælt með OsteoStrong og þessi heilsurækt mun verða hluti af minni þjálfun í framtíðinni,“ segir hún.

OsteoStrong er byltingarkennt æfingakerfi sem styður allt íþróttafólk til vaxtar. Meðlimir OsteoStrong mæta einu sinni í viku og ná á innan við 10 mínútum að þétta vöðva, sinar, liðbönd og bein, bæta árangur og fyrirbyggja meiðsl.

Svanlaug Jóhannsdóttir og Örn Helgason eru eigendur OsteoStrong.
Bara tíu mínútur í viku

Allt að fimm- til sjöfaldur munur getur verið á styrk vöðva eftir því hvernig þeim er beitt. Tæki OsteoStrong gefa notendum möguleika á að fullreyna á vöðvana sína í sterkustu stöðu. Þannig nær fólk að setja á líkamann meira álag en þeir gera annars staðar og með mun minni áhættu. Meðlimir OsteoStrong mæta einu sinni í viku og ná í fjórum tækjum að styrkja vöðva, sinar, liðbönd og bein svo um munar. Fólk mætir eins og það er klætt og gerir æfingarnar á sokkunum.

Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri óháð líkamlegri getu.

Meðlimir geta átt von á að:

  • Auka styrk.
  • Minnka líkur á álagsmeiðslum.
  • Bæta líkamsstöðu.
  • Auka jafnvægi.
  • Minnka verki í baki og liðamótum.
  • Auka beinþéttni.
Minni verkir

„Það er svo spennandi hvað æfingarnar geta hjálpað mörgum. Bæði þeim sem eru í stöðugri hreyfingu og líka þeim sem hafa jafnvel bara þurft að liggja í rúminu í nokkur ár. Sumir finna mun á sér um leið en fyrir aðra þá getur það tekið einhvern tíma. Það er einstaklega gefandi að sjá sólina vaxa í augum fólks þegar það kemur viku eftir viku,“ segir Svanlaug, annar eigandi OsteoStrong.

Rauð og innrauð ljós bæta kollagenframleiðslu húðarinnar.
73% sterkari á ári

„Enginn annar möguleiki sem við þekkjum býður upp á svona mikla styrktaraukningu á jafn stuttum æfingatíma. Vöðvarnir þéttast með því að vöðvaþræðlingum fjölgar en þó þyngjast vöðvarnir ekki að neinu ráði,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong. Athuganir á árangri meðlima sýna að þeir styrkja sig að meðaltali um 73% á ári.

Alls kyns íþróttir

Ástundun OsteoStrong hefur nýst alls kyns íþróttafólki. Niðurstöður könnunar sem gerð var á reyndum iðkendum í golfi leiddu í ljós verulega bætingu með ástundun OsteoStrong á einungis fjórum skiptum. Meðaltalsbæting á snúningsgetu axla var um 13 gráður, hröðun kylfuhauss um 8,05 km á klst. og hraði golfbolta jókst um 14,5 km á klst.

Bætt jafnvægi

Jafnvægið er eitt af því fyrsta sem meðlimir taka eftir að aukist. Meðal bæting er 77% á fimm skiptum. Æfingarnar eru gerðar á titringspöllum sem gerir æfingarnar erfiðari og árangursríkari.

OsteoStrong býður upp á fría prufutíma með kynningu á virkni kerfisins í Hátúni 12. Áhugasamir geta skráð sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200.

Lísbet Grímsdóttir, lífeindafræðingur og fjallgöngumaður.

Fljótlega verkjalaus „OsteoStrong er í mínum huga styrkur, kraftur og hreysti. Ég varð fljótlega verkjalaus eftir að hefja ástundun hérna. Ég fann það strax eftir fyrsta tímann hérna og hef fundið það aukast síðan að þegar ég er að ganga á fjöll finn ég fyrir meiri krafti, meiri orku og meiri gleði. Alltaf þegar ég kem í OsteoStrong mætir mér hlýja, virðing og fagmennska. Ég er þakklát fyrir að hafa verið leidd hér inn og mun vera hér áfram.“ Lísbet Grímsdóttir, lífeindafræðingur og fjallgöngumaður.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum