frettabladid-is

Ótrúlegur árangur á stuttum tíma

OsteoStrong er byltingarkennt kerfi sem hjálpar fólki að styrkja vöðva, minnka verki í liðum og stoðkerfi, styrkja bein og auka jafnvægi með góðum árangri. Ástundun tekur 10 mínútur á viku.

Fólk mætir í æfingar í OsteoStrong í venjulegum fötum, tekur á, svitnar ekki en getur fylgst mjög vel með styrktaraukningu. „Styrktaraukning er mjög hröð hérna og fólk er að meðaltali að bæta sig um 73% á ári. Eftir að hafa gert æfingar í 10 mínútur er fólki svo boðið að leggjast á PEMF bekki í slökun, sem eykur blóðflæði og dregur úr bólgum í líkamanum,“ segir Örn Helgason, annar eigandi OsteoStrong á Íslandi.

Daglegar árangurssögur

„Flestir koma til okkar af því að þeir vilja losna við verki og styrkja sig. Það er fátt jafn gefandi eins og að heyra þær, að þetta hafi tekist og hvernig æfingarnar hafa breytt lífi fólks. Það er merkilegt hvað það eru rosalega margir sem upplifa mikla verki á hverjum degi en tekst samt svo fallega að brosa framan í lífið,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, hinn eigandi OsteoStrong. „Við höfum tekið á móti 3.600 manns hérna í Borgartúninu á árinu og núna stunda 450 manns OsteoStrong vikulega. Sumir koma bara í nokkra mánuði og þurfa ekki meira, þeir sem vinna að uppbyggingu beina þurfa allavega að vera hjá okkur í eitt til þrjú ár. Aðrir hafa ákveðið að gera ástundun að hluta af heilbrigðum lífsstíl. Það hefur líka verið ánægjulegt hversu mikið af fólki úr heilbrigðisgeiranum hefur kynnt sér starfsemina, eins og læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar og aðrir sem láta sig heilbrigði varða,“ bætir Örn við.

Hraðari uppbygging

Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri, óháð líkamlegri getu. Með því að setja álag á líkamann hvetjum við hann til þess að styrkja sig. Með ástundun þéttast bein, vöðvar, sinar og liðbönd. Tæki OsteoStrong gera meðlimum kleift að ýta frá sér fleiri kílóum en er mögulegt annars staðar. „Þess vegna gerast hlutirnir oft hraðar hérna heldur en við aðra hreyfingu. Fólk finnur í framhaldi oft fyrir minni verkjum, betra jafnvægi og meiri orku. Þá er svo miklu skemmtilegra að vera til,“ segir Svanlaug.

Betra jafnvægi

Það má búast við því að jafnvægið batni hratt. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta sig um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í jógatímum. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveldara með að ganga.

Miklu orkumeiri

„Ég greindist með vefjagigt um tvítugt og er 48 ára í dag. Helstu einkennin hjá mér hafa verið höfuðverkjaköst sem líkjast mígreniköstum, flensueinkenni eins og beinverkir, svefnvandamál, þunglyndi, orkuleysi og vægur hiti. Ég hef farið í gegnum endurhæfingu nokkrum sinnum hjá mismunandi meðferðarstofnunum sem hjálpuðu mér mikið. Það er full vinna að halda heilsunni þokkalegri og oft erfitt að halda áfram fullum dampi í öllu því sem maður lærir í endurhæfingunni þegar vinnan bætist við. Ég næ að halda mörgum einkennum töluvert niðri með hreyfingu en orkuleysið háir mér mikið og mig langar svo oft að gera alls kyns hluti sem ég hef hreinlega ekki orku til.

Ég var búin að sjá umfjöllun um OsteoStrong nokkrum sinnum í blöðunum og var nú ekki alveg viss um að þetta virkaði, aðeins 10-15 mínútur einu sinni í viku! Ég ákvað samt að gefa þessu séns og að ég kæmi þessum stutta tíma sem þetta tekur örugglega fyrir. Eftir tíma tvö fór ég að finna breytingu. Ég var töluvert orkumeiri en vissi ekki hvort þetta væru nokkrir góðir dagar hjá mér eða að OsteoStrong væri að virka. Núna er ég búin með fimm tíma og orkan sem ég fann fyrir eftir tímana tvo hefur haldið áfram. Ég hef ekki átt svona marga góða daga í mjög langan tíma.

Annað sem breyttist líka var svefninn. Ég er fljótari að sofna og vakna úthvíldari og á því betra með að vakna. Ég ætla því hiklaust að halda áfram hjá OsteoStrong og mæli með því að fólk prófi,“ segir Ingibjörg Eiríksdóttir sem er ein þeirra fjölmörgu sem stunda æfingar hjá OsteoStrong.

Einmitt það sem þarf

Fólk sem stundar OsteoStrong er á öllum aldri og mjög mismunandi á sig komið. Margir nota þetta sem viðbót við aðra þjálfun, en fyrir suma er þetta það eina sem þeir geta stundað.

„Það er ekki meiningin að við séum eina hreyfingin sem fólk stundar. Við hvetjum fólk endilega til að gera allt sem því þykir skemmtilegt. Fyrir suma erum við það fyrsta sem þeir geta gert eftir að hafa dottið út úr hreyfingu í langan tíma eða lent í alvarlegum áföllum. Fyrir aðra erum við einmitt hjálpin sem þarf, til þess að ná markmiðum sínum í þríþrautinni,“ bætir Örn við.

Meðlimir geta átt von á að:

  • Auka jafnvægi
  • Auka styrk
  • Minnka verki í baki og liðamótum
  • Lækka langtíma blóðsykur
  • Auka beinþéttni
  • Bæta líkamsstöðu
  • Minnka líkur á álagsmeiðslum

OsteoStrong býður upp á ókeypis prufutíma á fimmtudögum og föstudögum í Borgartúni 24. Áhugasamir geta skráð sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200.

Erla Sigurðardóttir finnur mikinn mun á sér eftir að hún byrjaði æfingar hjá OsteoStrong.
Var búin að reyna allt

„Ég var búin að vera máttlaus í hægri fætinum í fjögur ár. Ég var búin að fara til ýmissa lækna í sneiðmyndatöku, röntgenmynd og ekkert sást. Ég er með spengingu neðst í bakinu við spjaldhrygginn og járnin trufla myndirnar. Það sást ekkert og ég fékk enga skýringu en var bara sagt að þjálfa mig. Ég fór í sjúkraþjálfun, nudd, stundaði æfingar í tækjasal og fór upp alla stiga sem ég komst í – en ekkert hefur virkað, alltaf var ég jafn máttlaus í fætinum. Svo kynntist ég OsteoStrong og á nokkrum vikum breyttist þetta bara – það er magnað! Nú get ég gengið upp stiga án þess að toga mig upp á handriðinu. Svona vegferð fylgja alls konar áskoranir og mér finnst það hafa bjargað mér að koma hingað vikulega. Ég get gert eitthvað fyrir mig – sem ég á að vera að gera. Ég rækta sjálfa mig í rólegheitunum og fæ þennan styrk í leiðinni. Ég finn fyrir æfingunum virka í öllum líkanum. Það er líka rosalega gaman að koma í OsteoStrong. Það eru allir svo þægilegir í viðmóti, mér leið ekki eins og ég væri að mæta ókunnugu fólki, heldur að ég hefði alltaf þekkt fólkið hjá OsteoStrong,“ segir Erla Sigurðardóttir.

Jafnvægi eykur lífsgæði

„Síðastliðin fimm ár hef ég lagt mikið upp úr því að finna leiðir til þess að bæta jafnvægið. Ég tók meðal annars í fyrra þátt í rannsókn á jafnvægi á Landakoti sem stóð í þrjá mánuði. Þá gerði maður sjálfur æfingar í 15 mínútur á dag og fór vikulega til sjúkraþjálfara, það reyndist mér vel. Ég er þess vegna orðin mjög meðvituð um virkni og áhrif jafnvægisæfinga. Ég var því rosalega hissa eftir að hafa farið í prufutíma hjá OsteoStrong að finna að ég fann strax mun á jafnvæginu! Einungis fjögur tæki í stutta tíma með hlutfallslega litlu átaki þrátt fyrir hámarksaflsbeitingu. Ég fann einnig á örfáum vikum hvernig þetta hafði jákvæð áhrif á allt stoðkerfið. Það eru lífsgæði að vera með gott jafnvægi,“ segir Magný Jóhannesdóttir.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum