frettabladid-is

OsteoStrong opnar í Ögurhvarfi

OsteoStrong fagnar þriggja ára starfsafmæli sínu um þessar mundir með því að bæta við nýrri stöð í Ögurhvarfi. Um 500 manns stunda æfingar vikulega í stöðinni í Hátúni. Heimsóknin tekur aðeins 20 mínútur í heildina, einu sinni í viku og þannig bæta meðlimir styrk vöðva, auka jafnvægi, lækka blóðsykur og minnka verki í liðum og baki.

Sigmundur Þorsteinsson er orkumikill og lífsglaður bóndi sem rekur eggjabúið Hvamm hjá bænum Elliðahvammi, rétt við borgarmörkin. Hann er einnig með kindur, hesta, býflugur og selur íslenskt hunang. Hann er uppátækjasamur, ævintýragjarn, syngur í Brokkkórnum og fer reglulega í hestaferðir.

„Ég er alltaf eitthvað að bralla og færast í fang. Fyrir bændur og aðra sem vinna með dýrum getur þetta tekið töluvert á líkamann og ég hreinlega veit ekki hversu oft ég hef brotið tá, fingur, rifbein, rist eða annað. Þetta eru nokkrir tugir brota, en það stoppar mig nú lítið nema í smá stund.

Svanlaug og Örn eru eigendur OsteoStrong en stöðin hefur vaxið og dafnað. Nýja stöðin í Ögurhvarfi er glæsileg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

Upphaflega fór ég í heimsókn til OsteoStrong af því að ég mældist með beingisnun og lyfin sem mælt var með að ég tæki fóru illa í mig. Ég var búinn að vera í rúmt ár þegar ég fór aftur í mælingu og þá hafði beinþéttnin mín alveg haldið sér, staðið í stað, en ekki rýrnað, sem ég var mjög ánægður með. Mjög óvænt og nærri því ótrúleg mæling kom líka í þeirri læknisferð, ég hafði hækkað um einn sentimetra við æfingarnar,“ segir Sigmundur.

„Þegar ég byrjaði ég hjá OsteoStrong var ég illa verkjaður eftir slys sem ég lenti í þegar ég var tvítugur. Í framhaldi af því var ég alltaf með seiðing og verk sem leiddi niður í fót. Það tók nokkra mánuði en ég er laus við þá verki í dag,“ heldur hann áfram.

„Ég fann strax mikinn mun á mér þegar ég byrjaði í ástundun og held áfram að koma til að halda áfram að halda beinþéttninni við. Ég finn mikinn mun á jafnvæginu líka og það hjálpar mér að minnka líkur á fleiri byltum. Ég hef lent í ýmsu síðan ég byrjaði en ég tók eftir því að þó að hestur hafi stigið á mig og kind stangað mig þá hef ég ekki brotnað. Áður var ég alltaf lurkum laminn eftir hestaferðir en í dag taka þær miklu minna á mig og ég hika ekki við að skella mér af stað.

Það er nóg pláss í nýju stöðinni í Ögurhvarfi 2. Hægt er að fá frían prufutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

Sem betur fer er maður svo fljótur að gleyma, þannig að ég þurfti alveg smá tíma í að rifja upp hvernig ég var fyrir OsteoStrong. Það tekur bara 20 mínútur í hverri viku að stunda OsteoStrong. Ég mæli svo sannarlega með því,“ segir Sigmundur.

73% styrking á ári

„Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækjum og reyna þannig á allan líkamann,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. „Hreyfingin er lítil en átakið hins vegar meira en fólk er vant án þess að verða manni ofviða. Með nýju áreiti fær líkaminn skýr skilaboð um að byggja sig upp og hefst handa við að þétta bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar. Þannig styður líkaminn betur við okkur og fólk er mikið að losa sig við verki í stoðkerfinu. Með vikulegri ástundun er fólk á einu ári að styrkja sig um 73%.“

Tíminn er núna

OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp. „Hjá okkur eru til dæmis einstaklingar sem eru að undirbúa sig fyrir Landvættina og á sama tíma einstaklingar sem eru farnir að þurfa að styðjast við göngugrind og allt þar á milli. Það eru svo margir sem hafa dottið út úr rútínu með sína hreyfingu tengt Covid og þrá að komast aftur af stað. Það er góð hugmynd prófa OsteoStrong núna og byrja strax að safna styrk fyrir vorið og útiveruna,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong.

Ný stöð í Ögurhvarfi

OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um þessar mundir. Vikulega mæta um 500 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku. „Til viðbótar við stöðina í Hátúni 12 opnuðum við nýja stöð í byrjun febrúar í Ögurhvarfi. Þannig geta enn fleiri nýtt sér þjónustu OsteoStrong og leiðin er styttri fyrir þá sem koma til dæmis frá Selfossi og Borgarnesi. Við erum mjög spennt yfir möguleikanum á því að fá að þjóna fleiri svæðum á Íslandi og erum alltaf spennt yfir að tala við mögulega samstarfsaðila,“ segir Svanlaug.

Æfingarnar taka stuttan tíma en eru engu að síður öflugar fyrir líkamann. Mörgum hentar það mjög vel.
Góðar sóttvarnir

„Við hugum mjög vel að sóttvörnum og enn sem komið er hefur enginn náð að smitast hjá okkur. Með allt þetta fólk og á öllum þessum tíma hefur það í aðeins tvígang komið fyrir að einstaklingur kom og gerði æfingarnar sínar en komst að því eftir á að hann var með Covid. Okkur þótti vænt um það þegar annar þeirra sagði við smitrakningarteymið: „Jú, ég fór þangað en það er ekki séns að nokkur smitist þar, OsteoStrong er örugglega mest sótthreinsaði staður á Íslandi,“ segir Örn.

Meðlimir geta átt von á að:

Auka styrk

Minnka verki í baki og liðamótum

Lækka langtíma blóðsykur

Auka beinþéttni

Bæta líkamsstöðu

Auka jafnvægi

Minnka líkur á álagsmeiðslum

OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um þessar mundir. Vikulega mæta um 500 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku.
Frír prufutími

„Við bjóðum upp á fría prufutíma á fimmtudögum. Það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar, en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn.

OsteoStrong er í Ögurhvarfi 2 og Hátúni 12, sunnan megin.

Prufutíma má bóka á osteostrong.is og í síma 419 9200.

Jafnvægisæfingar eru afar mikilvægar.

 

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum