frettabladid-is

OsteoStrong gjörbylti lífi mínu

Svanlaug Jóhannsdóttir hefur rekið OsteoStrong í þrjú ár. OsteoStrong er byltingarkennt kerfi sem hjálpar fólki að styrkja vöðva, minnka verki í liðum og stoðkerfi, styrkja bein og auka jafnvægi með góðum árangri. Ástundun tekur aðeins um 20 mínútur á viku.

Þegar OsteoStrong var opnað í Reykjavík var Ísland fimmta landið sem bauð upp á þessa þjónustu. Þremur árum síðar eru löndin orðin tíu, alls staðar í Skandinavíu og stöðvar OsteoStrong á Íslandi orðnar tvær.

„Við hjónin vorum nýflutt heim til Íslands frá Spáni þegar við skelltum okkur á námskeið í Bretlandi. Námskeiðið snerist aðallega um það að gefa sér tíma til þess að skoða hvað mann langaði til að gera meira af og hvað maður vildi minna af í lífinu. Við komumst fljótt að þeirri niðurstöðu að við vildum allra helst stofna saman fyrirtæki svo við gætum unnið saman að sameiginlegu markmiði en líka svo að við gætum knúsast í kaffitímanum,“ segir Svana og brosir.

„Við sáum fyrir okkur að vinna í því í svona þrjú ár, safna hugmyndum og peningum og svo slá til. Fyrir tilviljun kynntumst við einmitt OsteoStrong í þessari sömu ferð. Það liðu níu mánuðir frá því að hugmyndin kom upp og þar til að við vorum búin að opna fyrstu stöðina. Okkur fannst biðin rosalega löng, en eftir á að hyggja gekk þetta bara mjög hratt.“

Nýlega var opnuð ný OstoeStrong-stöð í Ögurhvarfi í Kópavogi. fréttablaðið/anton brink
Tími fyrir samveru

„Það voru mikil viðbrigði að flytjast til Íslands úr spænskri sveitasælu. Við höfum bæði búið í nokkrum löndum þannig að það kom okkur svo sem ekkert á óvart, en samt. Það er svo rosalega mikið að gera hjá Íslendingum, stress í samfélaginu og álag á fólki. Okkur fannst að ef við gætum hjálpað fólki að styrkja sig þetta mikið á svona stuttum tíma þá gæti fólk kannski tekið sér smá tíma í að slaka á og horfa út í loftið eða njóta með sínum nánustu. Það var í rauninni ekki fyrr en við vorum búin að opna að ég fattaði að OsteoStrong gæti líka gert eitthvað fyrir mig,“ segir Svana enn fremur.

Svana segir að þeir sem vilja prófa OsteoStrong geti fengið frían prufutíma á miðvikudögum í Ögurhvarfi 2 og á fimmtudögum í Hátúni 12.
Fall er fararheill

„Fimm mánuðum áður en við opnuðum OsteoStrong braut ég mjög illa á mér ökklann. Kaldhæðnislega gerðist það á ráðstefnu um sterk bein í Vegas. Beinin voru skrúfuð saman og ég lá í fimm daga á spítala eftir aðgerðina. Það er ekki beint það sem maður er að leita eftir þegar verið er að undirbúa að opna heilsufyrirtæki og langar að líta vel út.

En það er svo skemmtilegt við þetta líf að allt skilar þetta manni einhverju. Ferillinn í framhaldi af þessu broti var fín áminning um það hvað það er ömurlegt þegar líkaminn getur ekki haldið í við mann,“ segir hún.

Slæm eftir barnsburð

„Það var svo sem ekkert nýtt fyrir mig að líða ekki nógu vel með skrokkinn á mér. Ég er laus í liðunum og hafði brotið hinn ökklann 20 árum áður. Þegar maður er laus í liðunum og gengur með barn verður grindin oft allt of laus og verkir sem fylgja því miklir. Eftir að ég hafði gengið með þriðja barnið okkar þá var ég svo slæm í grindinni að ég átti erfitt með að lyfta nokkru, þá gat ég stundum ekki labbað daginn eftir. Ég var með frábæran sjúkraþjálfara sem hjálpaði mér með þetta en mikið var það langt og erfitt ferli, mörg ár. Hann hélt mér góðri og hnykkti mig til þegar allt var komið í óefni. Það var samt ekki fyrr en ég fór sjálf að stunda OsteoStrong sem mjaðmirnar urðu til friðs og nú er ég svo ofboðslega frjáls í eigin líkama og fæ svona vandræðalega auka-ánægju af því að lyfta sófum, þvottavélum, steinum eða bara hverju sem ég veit að ég hefði ekki getað valdið áður.

Það er samt ekki það eina. Ég finn bara svo vel hvað ég er tilbúin í alls konar, ekkert hrædd við að þreytast og tilbúnari til þess að færast mikið í fang. Ég finn að grunnurinn er svo miklu betri og nú er ég búin að finna aðra hreyfingu sem ég geri daglega ásamt ástundun á OsteoStrong.“

Æfingarnar henta öllum, jafnt öflugum íþróttamönnum sem fólki sem hefur ekkert hreyft sig. Styrktaræfingarnar eru einstaklega góðar til að bæta jafnvægið.
Beinþynning er ættgeng

„Það var svo ekki fyrr en við vorum búin að vera í rekstri í nokkurn tíma sem að ég áttaði mig á að beinþynning er mjög algeng í minni fjölskyldu. Í allri þessari umræðu og pælingum um beinþéttni var ég bara að hugsa um hvernig við gætum hjálpað öðru fólki að bæta sín lífsgæði. Ég áttaði mig ekki á að þarna var ég algerlega að bjarga sjálfri mér um leið. Ég á enn nokkur ár í að ganga í gegnum tíðahvörf en sagt er að beinþéttni kvenna geti minnkað um allt að 20% á árunum eftir tíðahvörf. Það er talið eðlilegt að eftir þrítugt fari bein að rýrna um að meðaltali 2% á hverju ári. Ég stefni á vera komin með það fáránlega sterk bein að það muni ekkert á mig fá,“ segir Svana og getur ekki annað en brosað.

Sterkari óháð aðstæðum

„Við fáum alls ekki úthlutað jafn góðum eintökum af líkama þegar að við komum í lífið. Ég er greind með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni og endómetríósu, einkennin sem fylgja því eru einu orði sagt ömurleg og lausnirnar fáar. Þegar verst lætur eru þetta 2-4 dagar í mánuði þar sem ég er frá af verkjum. Ég er líka með alls kyns fæðuóþol sem ég hef fundið að ýkjast í framhaldi af áföllum lífsins. Mér þykir svo vænt um að í OsteoStrong ættu langflestir að geta sótt þjónustu og styrk óháð því hvað á dynur þar fyrir utan og út af því að þetta tekur bara 20 mínútur einu sinni í viku þá ættu flestir að hafa tíma til þess líka,“ upplýstir hún.

Að vaxa í verkefnunum sínum

„Þegar við stofnuðum OsteoStrong þá ætlaði ég að takast á við nýtt, máta mig í ný hlutverk og leyfa verkunum að tala. Það hefur heldur betur tekist og okkur hefur einnig tekist að skapa yndislegt andrúmsloft á stöðvunum í Hátúni og Ögurhvarfi. Ég hef fengið að vaxa svo mikið í þeim verkefnum sem við höfum ráðist í og ég er þakklát fyrir allt sem ég hef lært. Mér datt ekki í hug að ég fengi í leiðinni stórbætta líðan, aukinn styrk og áræði. Það er sönn og einstaklega ánægjuleg bylting í mínu lífi.“

Meðlimir geta átt von á að:

■ Auka styrk

■Minnka verki í baki og liðamótum

■ Lækka langtíma blóðsykur

■ Auka beinþéttni

■ Bæta líkamsstöðu

■ Auka jafnvægi

■ Minnka líkur á álagsmeiðslum

Frír prufutími

„Við bjóðum upp á fría prufutíma á miðvikudögum í Ögurhvarfi 2 og á fimmtudögum í Hátúni 12. Ég hvet alla til að bóka sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200.“ ■

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum