frettabladid-is

Fann hratt mikinn mun með OsteoStrong

OsteoStrong, Hátúni 12, fagnar þriggja ára starfsafmæli sínu um þessar mundir. Um 500 manns stunda æfingar vikulega hjá OsteoStrong. Heimsóknin tekur aðeins 20 mínútur í heildina, einu sinni í viku, og þannig bæta meðlimir sjálfa sig, styrk vöðva, auka jafnvægi, lækka blóðsykur og minnka verki í liðum og baki.

Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, fór að stunda OsteoStong eftir að hann fór að finna fyrir verkjum í líkamanum.

„Mér finnst óeðlilegt að vera með verki. Mér finnst eðlilegt að vera verkjalaus og mér finnst að allir ættu að stefna að því. Ég spilaði fótbolta í Bandaríkjunum og lærði íþróttafræði í Saint Augustin í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég var líka á íþróttabraut í menntaskóla og ætlaði alltaf að verða íþróttakennari, sem ég svo gerði. Ég var þjálfari barna og unglinga, síðar einkaþjálfari og hafði alla mína ævi þjálfað fólk í íþróttum. Það er þess vegna mjög auðvelt að tala við mig um heilsu, andlega heilsu og heilbrigt líferni. Þegar OsteoStrong var opnað þá var ég eins og margir: „Nei, það getur ekki verið, fjögur tæki, einu sinni í viku?“ Mér fannst þetta náttúrulega mjög skrítið.

Æfingarnar taka stuttan tíma, aðeins 20 mínútur, en eru afar áhrifaríkar.
Tilbúinn að breyta til

En ég var á þeim stað að mig langaði að breyta til. Ég var búinn að telja mánuðina og dagana þar til ég yrði fimmtugur og vildi fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég var eins og margir, hafði aðeins fækkað ferðum í ræktina á meðan ég var með lítil börn og var að stofna fyrirtæki. Það koma alltaf smá svona tímabil þar sem maður dettur út í smá tíma.

Fljótlega verkjalaus í baki

Þegar ég byrjaði í ástundun hjá OsteoStrong var ég slæmur í baki, öxl og hálsi. Ég var rosalega duglegur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði mig fram um að missa aldrei úr tíma af því að ég fann mun á mér eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu sinni í viku, ekki neitt annað með.

Örn og Svana rekar Osteo­Strong og eru sífellt að stækka við sig. Ný stöð verður opnuð í Ögurhvarfi í febrúar.
Aukin löngun í hreyfingu

Svo smám saman gerðist svo margt ánægjulegt. Með auknum styrk, minni verkjum og aukinni orku þá fór ég að leita í fleiri leiðir til þess að bæta heilsuna, fann löngun til að mæta í ræktina og mætti þar þrisvar sinnum í viku ásamt því að stunda OsteoStrong einu sinni í viku. Það er svo skemmtilegt að hreyfa sig þegar manni líður vel.

Pabbi minn er 73 ára. Hann hefur sömu sögu að segja en hann fann reyndar mun á sér strax eftir fyrsta tíma. Ég held að það sé eðlilegt að það taki mann aðeins lengri tíma að finna fyrir breytingum þegar maður er yngri og í betra formi.

Gleðin í skammdeginu

Hreyfing er svo verðmæt fyrir andann og það skiptir svo miklu máli að vera ekki verkjaður. Það er grunnatriði. Til þess að lyfta andanum tók ég upp á því í jólafríinu að fara í tvo stutta göngutúra á dag í náttúrunni og mér finnst það mjög verðmætt. Í nokkur ár hef ég vandað mig við að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér 5-mínútna-þakklætis-bækur um árið og núna er það orðið sjálfkrafa hjá mér finna fyrir þakklæti óháð aðstæðum hverju sinni.

Ég las líka „Af hverju sofum við“ og hætti að mæta í sund á morgnana eins og ég hafði gert í 15 ár. Nú sef ég bara þessa tvo auka klukkutíma og ég greinilega þurfti á því að halda því að ég er allur miklu kátari.

Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum liðleika og orkan hefur aukist.
Tími fyrir heilsu

Það er svo gott að byrja hjá OsteoStrong. Maður finnur svo hratt fyrir breytingum og byrjar þá smám saman að skoða í kringum sig eftir fleiri leiðum til að bæta heilsuna og gleðina. Þegar ég lít núna tvö ár aftur í tímann þá má segja að OsteoStrong hafi ýtt við mér að ná markmiði mínu sem er að vera í toppformi þegar að ég verð fimmtugur. Borða betur, sofa betur, æfa betur. Ég hef enn nokkra mánuði til stefnu og hlakka til,“ segir Helgi sem er annar eigandi Aha.is.

Ný stöð í Ögurhvarfi

OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um áramótin. Vikulega mæta um 500 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku.

„Til viðbótar við stöðina í Hátúni 12 opnum við nýja stöð í byrjun febrúar í Ögurhvarfi. Þannig geta enn fleiri nýtt sér þjónustu OsteoStrong og leiðin er styttri fyrir þá sem koma til dæmis frá Selfossi og Borgarnesi. Við erum mjög spennt yfir möguleikanum á því að fá að þjóna fleiri svæðum á Íslandi og erum alltaf spennt yfir að tala við mögulega samstarfsaðila,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong.

Æfingarnar eru ekki erfiðar og henta öllum, jafnt þeim sem eru í íþróttum og hinum sem hafa lítið hreyft sig.
Tíminn er núna

OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp. „Hjá okkur eru til dæmis einstaklingar sem eru að undirbúa sig fyrir Landvættina og á sama tíma einstaklingar sem eru farnir að þurfa að styðjast við göngugrind og allt þar á milli. Það eru svo margir sem að hafa dottið út úr rútínu með sína hreyfingu tengt Covid og þrá að komast aftur af stað. Það er góð hugmynd prófa OsteoStrong núna í skammdeginu og byrja strax að safna styrk fyrir vorið og útiveruna,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong.

73% styrking á ári

„Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann,“ segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil en átakið er hins vegar meira en fólk er vant án þess að verða manni nokkurn tíma ofviða. Með nýju áreiti fær líkaminn skýr skilaboð um að byggja sig upp og hefst handa við að þétta bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári er fólk að meðaltali að styrkja sig um 73%.

Góðar sóttvarnir

Við hugum mjög vel að sóttvörnum og enn sem komið er hefur enginn náð að smitast hjá okkur. Með allt þetta fólk og á öllum þessum tíma hefur það í aðeins tvígang komið fyrir að einstaklingur kom og gerði æfingarnar sínar en komst að því eftir á að hann var með Covid. Okkur þótti vænt um það þegar annar þeirra sagði við smitrakningarteymið: „Jú, ég fór þangað en það er ekki séns að nokkur smitist þar, OsteoStrong er örugglega mest sótthreinsaði staður á Íslandi,“ segir Örn.

Frír prufutími

„Við bjóðum upp á fría prufutíma á fimmtudögum. Það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar, en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn.

OsteoStrong er í Hátúni 12, sunnan megin. Prufutíma má bóka á osteostrong.is og í síma 419 9200.

Deila

Nýjasta í fjölmiðlum